Afmælisbarn
270608

270609

Fékk kórónu í leikskólanum...

...og hjálp við að blása á kertið :)
Afmælismyndir
6. júní 2009

Elena fékk blokkflautu og hefur ekki hætt að flauta síðan. Gefandinn á sjálfur þrjá stráka og fannst greinilega vanta eitthvað upp á gauraganginn hjá okkur ;)
Bjössi sýnir bumbuna í bakgrunni

Teresa Björg á ekki afmæli strax en fékk samt að smygla veislunni sinni með

Ánægð í garðinum. Veðrið var geggjað

Berglind og Olga

Auður, Maggi og ófædd Magnúsdóttir

Sóley Beatrice og Paolo, pabbi hennar

Sóley að skottast og Rocco á eftir

Þriggjastrákamamman gaf Teresu hristur :)

Svona áttu að gera þetta, Elena mín...

...smá flókin fingrasetning

Kata Júlía og Svanfríður

Næs stemning í sólinni og óslegnu grasinu


Stelpurnar voru í skýjunum með daginn :)
Hvað kallar útlendingur forgang í umferðinni?
-Forrétt.
Við fórum í Nauthólsvík í góða veðrinu í vikunni. Stelpurnar í flíspeysu með lambhúshettu, René í leðurjakka og ég með flísteppi vafið utan um mig. Allt í kringum okkur voru kvensur í bíkiníi og berrössuð börn. Annaðhvort erum við meiriháttar kuldaskræfur eða allir hinir í meiriháttar sjálfsblekkingu um að hér sé sumar. Sennilega bara bæði.
Teresu gengur furðulega vel í skólanum. Ég sem hélt að litla viðhengið mitt yrði ómögulegt að vera án mín en það varð frekar á hinn veginn; ég þurfti aðlögun og er frekar ómöguleg án hennar. Litla jarðýtan er farin að labba meðfram og sleppir m.a.s. stundum. Furðulegt að sjá þennan mun á þeim systrunum. Elena á sama aldri sat og las. Teresa rífur og étur og æðir áfram.
Annars er lítið að frétta. Það er bara dásamlegt hvað hversdagurinn getur verið fullur af hamingju. :)

Mæðgur

Systur sem eru farnar að leika pínu saman

Amma að leika við Teresu

Elena fílaði Cyril. Hoppaði á honum og fannst hausinn á honum frábær; ekki eins loðinn og pabbi
Ég er stundum í bol með hinu fræga Rolling Stones - lógói, tungunni sem ullar. Nú er það uppáhaldsverkefni Teresu að reyna að setja dudduna sína upp í þennan munn. Óborganlegt alveg.