Nokkrar myndir frá yndislega fríinu okkar á Ítalíu

Stelpurnar með "nonna" og "nonno"

Stoltur afi

Tengdó að taka hveiti. Uppskeran var ágæt í ár

Stelpurnar sitjandi á bílaleigubílnum. Það vantar eiginlega mynd af listaverkinu hennar Elenu sem hún teiknaði á bílinn með stein! (Ekki segja neinum :/ )

Stelpurnar að leika sér. Teresa með eitthvað í munninum eins og alltaf

Ég fékk loksins að sjá Siena. Leiðin þangað var löng og hlykkjótt og kostaði eina uppsölu hjá Elenu. Þarna sést hún labba í burtu, ánægð að vera laus úr bílnum :)

Fórum líka til San Galgano. Stelpurnar voru með númer þar á tröppunum

Kirkjan í San Galgano. Þarna var allt fullt af bláum plaststólum því það er tónleikasumar þarna í ár. Ég get ekki ímyndað mér neitt fallegra en klassíska tónlist á þessum stað að kvöldi. Það hlýtur að vera himneskt. En plaststólarnir skemmdu aðeins stemninguna á daginn..

Týpískur dagur :)

Teresa og Niccolo frændi að skemmta sér

Voða gaman í sandinum. Ströndin bjargaði alveg á heitum dögum

Teresa var sko ekki hrædd við sjóinn, heldur hljóp út í hann og því lengra, því betra

Feðginin njóta útsýnisins frá Volterra

Hlunkovits á hestbaki

Sætar systur að róla saman

Útsýni yfir Toskana frá Casale. Fáránlega fallegt :)
9 Comments:
Vá, æðislegar myndir og ekkert smá fallegur staður :) kv. Berglind.
Geggjaðar myndir og sérstaklega finnst mér hveitiakursmyndin af tengdaforeldrum þínum frábær!
Birna
ÆÐI! Frábær að þið hafið verið í svona góðum notalegheitum á þessum geggjuðu slóðum. Mig langar aftur! Ferlega væri gaman að fara einhvern tímann í hópferð og halda upp á brúðkaupsafmæli ykkar René, taka börnin með og sleikja sólina og sötra vín... ahhhh.
Það er svo fallegt í Toscana, öfund öfund :-)
Fanney: JÁ! Setjum það á skedjúl a.s.a.p.! -Pálína
OK! Þá kem ég með fyrst ég missti af brúðkaupinu! Gifti mig kannski bara í leiðinni :O
B
Úúúú, like that! :) -P.
já, ég kem líka með því ég missti líka af brúðkaupinu : )
Rakel
mmmm æðislegar myndir ...
Ásdís
Sendu inn athugasemd
<< Heima